Skip to content

vefforritun/vef2-2018-v5

Folders and files

NameName
Last commit message
Last commit date

Latest commit

 

History

6 Commits
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 

Repository files navigation

Verkefni 5

Útfæra skal framenda ofan á próftöflu gögn úr verkefni 4. Gefin er vefþjónusta úr sýnilausn á verkefni 4 sem hægt er að nota: https://vefforritun2-2018-v4-synilausn.herokuapp.com/

Síður

Setja skal upp þrjár síður:

  • Forsíða með yfirlit yfir tölfræði fengin frá /stats
  • Dýnamísk síða fyrir hvert svið sem birtir fyrirsögn fyrir hverja deild ásamt prófum þeirra deilda
  • „Síða fannst ekki“ síða

Leiðarkerfi skal vera á hverri síðu sem sýnir öll svið og sækja skal lista frá vefþjónustu, ekki skal skrifa inn lista af öllum sviðum í kóða.

Svið

Á síðu sviðs skal birta heiti sviðs og hverja deild sem heldur próf. Þegar smellt er á heiti deildar er sú deild „opnuð“ og próf hennar birt í töflu með eftirfarandi gögnum:

  • Auðkenni námskeiðs
  • Heiti námskeiðs
  • Fjölda nemenda í prófi
  • Dagsetningu prófs

Ef önnur deild er opnuð skal loka öðrum deildum. Ef smellt er tvisvar á sömu deild skal hún opnuð og síðan lokuð. Þessa virkni skal útfæra með state og án þess að snerta DOM.

Heiti deildar skal vera með + fyrir framan ef lokuð og - fyrir framan ef opin.

Útlit

Fyrir útlit gildir:

  • Útlit skal vera skalanlegt
  • Nota skal Noto Sans fyrir meginmál (bæði regular og bold) og Noto Serif fyrir fyrirsagnir
  • Miðja skal allt efni og skal það ekki vera breiðara en 1200px
  • Leiðarkerfi skal miðjað undir fyrirsögn og valið svið skal vera feitletrað
  • Bil eru 10px, 20px eða 40px
  • Leturstærð er 16px fyrir meginmál, 32px fyrir meginfyrirsögn
  • Litur á annari hverri röð í töflum er #eee
  • Padding á öllu er 10px á allar hliðar

Sjá skjáskot úr sýnilausn

Útfærsla

Nota skal create-react-app, gefinn er grunnur með þeim components sem útfæra þarf.

Nota skal react-helmet til að setja <title> á hverri síðu, fyrir forsíðu: Próftöflur, fyrir svið: <heiti sviðs> – Próftöflur

Nota skal react-router til að setja upp leiðarkerfi vefs.

Fyrir alla componenta skal setja PropTypes rétt fyrir þau gögn sem þeir taka við.

Öll dependency eru skráð í package.json.

Nota skal fetch til að sækja gögn. Það þarf ekki að hugsa um að besta fjölda kalla í vefþjónustu, gera má köll aftur og aftur í sömu slóð til að birta mismunandi gögn.

Í .env er gefin slóð á vefþjónustu undir lykli REACT_APP_SERVICE_URL sem má nálgast í kóða með process.env.REACT_APP_SERVICE_URL. Lesa má nánar um þetta í skjölun create-react-app.

Breytingar hafa verið gerðar á sýnilausn sem keyrir fyrir verkefnið:

  • Lykill fyrir svið heitir schools ekki departments
  • Hvert svið hefur aukalega heiti sitt í svari

Setja skal verkefni upp á Heroku með create-react-app buildpack, til að fá slóðir til að virka rétt þarf að setja upp static.json skrá, sjá nánar í leiðbeiningum fyrir buildpack.

Git og GitHub

Verkefni þetta er sett fyrir á GitHub og almennt ætti að skila því úr einka (private) repo nemanda. Nemendur geta fengið gjaldfrjálsan aðgang að einka repos á meðan námi stendur, sjá https://education.github.com/.

Til að byrja er hægt að afrita þetta repo og bæta við á sínu eigin:

> git clone https://github.com/vefforritun/vef2-2018-v5.git
> cd vef2-2018-v5
> git remote remove origin # fjarlægja remote sem verkefni er í
> git remote add origin <slóð á repo> # bæta við í þínu repo
> git push

Mat

  • 40% – Forsíða og leiðarkerfi uppsett skv. forskrift
  • 50% – Síða fyrir svið uppsett skv. forskrift
  • 10% – Verkefni sett upp á Heroku

Sett fyrir

Verkefni sett fyrir í fyrirlestri fimmtudaginn 15. mars 2018.

Skil

Skila skal undir „Verkefni og hlutaprófa“ á Uglu í seinasta lagi fyrir lok dags fimmtudaginn 5. apríl 2018.

Skilaboð skulu innihalda slóð á GitHub repo fyrir verkefni, og dæmatímakennurum skal hafa verið boðið í repo (sjá leiðbeiningar). Notendanöfn þeirra eru ernir, elvarhelga og osk.

Einnig skal skila slóð á uppsetningu á Heroku, t.d. https://<appið-mitt>.herokuapp.com.

Einkunn

Sett verða fyrir fimm minni verkefni þar sem fjögur bestu gilda 7,5% hvert, samtals 30% af lokaeinkunn.

Sett verða fyrir tvö hópa verkefni þar sem hvort um sig gildir 15%, samtals 30% af lokaeinkunn.

About

Vefforritun 2 – 2018 – Verkefni 5

Resources

Stars

Watchers

Forks

Releases

No releases published

Packages

No packages published