Útfæra skal birtingu með flexbox eftir fyrirmynd.
Gefin er index.html
skrá sem ekki skal eiga við fyrir utan að bæta skal við class
við element þar sem þarf. Heiti þessara klasa skulu fylgja BEM .
Fyrir útlit gildir:
- Gefin er breidd á
<main>
og bakgrunnslitur á.cards
til að bera saman við fyrirmynd - Open sans er uppsett og skal nota fyrir allan texta
- Stærðir á textum:
- Grunnstærð:
16px
- Fyrirsagnir:
22px
með22px
línuhæð - Texti:
16px
með22px
línuhæð
- Grunnstærð:
- Flexbox skal notað til að stýra öllu útliti
- Fyrir
.cards
gildir að börnum skal dreift meðspace-around
- Fyrir
.card
gildir#fff
bakgrunnur2px
border með5px
radíus í#aaa
lit- Að hámarki
470px
að breidd og300px
á hæð - Allt efni sem myndi flæða út fyrir skal ekki sjást
- Að neðan skal vera
10px
margin - Löng orð sem brotið gætu útlit ættu ekki að gera það, finna þarf CSS yfirlýsingu sem brýtur þessi orð í línur
- Ef efni myndi flæða út fyrir skal birta skrunstikur
- Mynd skal taka
150px
hægra megin við efni
Leyfilegt er að nota þær CSS yfirlýsingar sem farið hefur verið yfir og þær sem bæta þarf við til að uppfylla verkefnalýsingu.
Einungis skal notast við flexbox til að stýra útliti og eru því eftirfarandi yfirlýsingar ekki leyfðar:
display
með annað gildi enflex
, sjálfgefin gildi eru þó leyfðfloat
position
Sjá fyrirmyndir í 1500px
, 1000px
og 500px
breiðum skjám:
- 20% – Snyrtilega uppsett, merkingarfræðilegt og gilt HTML sem notar BEM fyrir klasanöfn
- 20% – Snyrtilega uppsett, gilt CSS sem virðir takmarkanir
- 60% – Útlit útfært eftir forskrift
Verkefni sett fyrir í fyrirlestri mánudaginn 24. september 2018.
Skila skal undir „Verkefni og hlutaprófa“ á Uglu í seinasta lagi fyrir lok dags þriðjudaginn 2. október 2018.
Skilaboð skulu innihalda slóð á GitHub repo fyrir verkefni, og dæmatímakennurum skal hafa verið boðið í repo (sjá leiðbeiningar). Notendanöfn þeirra eru arnar44
, mimiqkz
, gorri4
, hinriksnaer
, gunkol
, freyrdanielsson
, osk
.
Sett verða fyrir tíu minni verkefni þar sem átta bestu gilda 3,5% hvert, samtals 28% af lokaeinkunn.
Sett verða fyrir tvö hópverkefni þar sem hvort um sig gildir 11%, samtals 22% af lokaeinkunn.
Útgáfa 0.1