Skip to content

vefforritun/vef1-2018-v9-synilausn

Repository files navigation

Verkefni 9

Útfæra skal leit og birtingu á lénum gegnum apis.is. http://apis.is/isnic?domain=hi.is leitar t.d. að upplýsingum um hi.is og skilar til baka hlut, t.d.:

{
  "results": [
    {
    "domain": "hi.is",
    "registrantname": "Háskóli Íslands",
    "address": "Sæmundargötu 2",
    "city": "Reykjavík",
    "postalCode": "101",
    "country": "IS",
    "phone": "",
    "email": "hostmaster@hi.is",
    "registered": "11. December 1986",
    "expires": "11. December 2018",
    "lastChange": "29. November 2017"
    }
  ]
}

Gefinn er HTML og CSS grunnur með útliti sem ekki ætti að þurfa að breyta.

Leit skal:

  • Aðeins leyfa að leita ef gildi í <input> er ekki tómistrengur, annars skal birta skilaboðin Lén verður að vera strengur
  • Birta skilaboðin Leita að léni... ásamt mynd loading.gif meðan leitað er, sjá .loading class

Villumeðhöndlun:

  • Ef villa kemur upp hjá apis.is eða við tengingu skal birta Villa við að sækja gögn
  • Ef ekkert lén finnst skal birta Lén er ekki skráð

Birta skal fyrir öll lén sem finnast:

  • Lén (domain)
  • Skráð (registered)
  • Seinast breytt (lastChange)
  • Rennur út (expires)

Ef gögn eru skilgreind skal einnig birta:

  • Skráningaraðili (registrantname)
  • Netfang (email)
  • Heimilisfang (address)
  • Land (country)

Dagsetningar skal birta sem ISO 8601 dagsetningar (YYYY-MM-DD).

Útfæra skal JavaScript virkni innan þess módúl sem gefinn er.

browser-sync er uppsett í verkefninu:

npm install
npm run dev

Sjá dæmi í demo.mp4.

eslint

Setja þarf upp eslint með airbnb style guide. eslint ætti að keyra þegar npm test er keyrt og linta allar javascript skrár.

Leyfilegt er að slökkva á villum tengum for of ítrunum með /* eslint-disable-line */, einnig er í lagi að nota það eða leyfa almennt console.error. Ekki ætti að nota það fyrir annað, heldur laga villu sem koma upp.

Mat

  • 20% – Snyrtilegt JavaScript með eslint uppsett og án villna
  • 30% – Leit eftir lénum
  • 30% – Niðurstöður birtar
  • 20% – Villumeðhöndlun

Sett fyrir

Verkefni sett fyrir í fyrirlestri mánudaginn 5. nóvember 2018.

Skil

Skila skal undir „Verkefni og hlutaprófa“ á Uglu í seinasta lagi fyrir lok dags þriðjudaginn 13. nóvember 2018.

Skilaboð skulu innihalda:

  • Slóð á verkefni á heimasvæði
  • Slóð á GitHub repo fyrir verkefni, og dæmatímakennurum skal hafa verið boðið í repo (sjá leiðbeiningar). Notendanöfn þeirra eru arnar44, mimiqkz, gorri4, hinriksnaer, gunkol, freyrdanielsson, osk

Einkunn

Sett verða fyrir tíu minni verkefni þar sem átta bestu gilda 3,5% hvert, samtals 28% af lokaeinkunn.

Sett verða fyrir tvö hópverkefni þar sem hvort um sig gildir 11%, samtals 22% af lokaeinkunn.


Útgáfa 0.1

About

Sýnilausn á verkefni 9 í vefforritun 1 2018

Resources

Stars

Watchers

Forks

Releases

No releases published

Packages

No packages published